prinsinn komin međ heimasíđu :)
en hann er komin með heimasíðu á barnalandi, slóðin þangað er http://barnaland.is/barn/52354..
endilega kíkjið á það, og kvittið í gestabókina :)
3 athugasemdir
eftir langa og mikla bið fæddist litli prins loksins, hann var nú ekki alveg á því að koma í heimin sá stutti..
litli prinsinn alveg ný fæddur :)
21. september:
Var ég lögð inná meðgöngudeild landspítalans, og átti þá að reyna að koma fæðingunni af stað, ég fékk einhvern stíl til að mýkja leghálsin, en ekkert gekk, ég fór bara að sofa og vaknaði síðan þegar að ljósmóðirinn kom klukkan 9 á föstudagsmorguninn og vakti mig.. spurði hvort að einhverjir verkir hefðu komið yfir nóttina.. en gerðist ekki neitt..
Svanhildur átti lítinn strák :) innilega til hamingju með prinsinn Svanhildur og Raggi :) vonast til að sjá ykkur sem fyrst :)
22.september:
ég fékk annan stíl um morguninn og átti bara að vera róleg og bíða eftir að eitthvað gerðist.. þá komst ég að því að sjúkrahúslega er mjög leiðileg og ég ætla að vona að ég þurfi nú ekki að fara að standa mikið í þessu ;) en allavegana ekkert skeði og ljósmóðirinn kom aftur um kvöldið til að athuga hvort að það hefði nú orðið einhver breyting.. en neinei, ekkert að ske, og ég fékk annan stíl.. og átti síðan bara að fara að sofa og vona að nú færi eitthvað að gerast.. en allt kom fyrir ekki og ég sofnaði bara ljúft.
23.september:
En síðan vaknaði ég um hálf 6 um morguninn við einhverja smá verki, og lét ljósmóðirina vita, hún kom og setti á mig monitor og hringdi í mömmu og sagði henni að nú færi þetta allt að bresta á og hún mætti fara að koma niðureftir.. Mamma kom og við vorum bara að horfa á sjónvarpið til að verða hálf 7, þá fylgdi ljósmóðirinn mér inná fæðingadeildina.. ég fór inná fæðingaherbergi og beið eftir að önnur ljósmóðir kæmi og talaði við mig.. um klukkan hálf 9 fóru síðan að koma einhverjir alvöru verkir og litli prins var fæddur klukkan 15:00..
Fæðinginn gekk í sjálfu sér vel, alveg þangað til í endan, þá duttu allir verkir niður og litli var bara hættur við að fæðast ;) Þannig að það var kallað á fæðingalækni og hann var tekin með sogklukku..
24. september:
lágum við bara á sængurkvennadeildinni og Inga amma, Arna María, Magga, Jósef, Ninna vinkona mömmu, Hafrún frænka, Dagmar, Alma, Styrmir, Mamma og Rósa Guðbjört komu til okkar í heimsókn, síðan um kvöldið fórum við bara heim :) síðan að við komum heim er litli búin að vera algjör engill sefur bara og sefur og drekkur þess á milli ;) bara draumabarn :) ég er samt búin að vera voðalega slöpp og meiða mig í saumunum, en ég vona að það fari nú að lagast, fór til læknis í dag, og mest eymslin eiga að vera farin eftir 5-7 daga..
Ég eignaðist líka lítinn bróður..:) Innilega til hamingju með prinsinn ykkar pabbi og Sirrý og vonast til að komast vestur sem fyrst að sjá ykkur ;)
28.september:
Fór með litla kút niður á barnaspítala í fimm daga skoðun, læknunum leyst voða vel á hann og sögðu að hann væri stór og hraustur strákur :)
Síðan að við komum heim erum við búin að fá mikið af heimsóknum :) litli sefur þær nú yfirleitt bara af sér og er ekkert mikið að skipta sér af þessu, hann er búin að fá helling af fötum í fæðingagjöf og síðan kerrupoka líka :)
Takk æðislega allir sem eru búnir að vera að senda og koma með til okkar pakka ![]()
Síðan er bara næst á dagskrá að finna nafn og ákveða hvenær ég ætli að skíra :) %20of%20100_0334.jpg)
Þarna er verið að klæða hann í heimferðagallan á fæðingadeildinni :)
Komin heim í vögguna mína og búin að fá snuddu ;)
Fleiri myndir af prinsinum eru inná síðunni hennar mömmu, slóðin þangað er:
http://www.simnet.is/hronnha/h.html
En látum þetta duga í bili, læt heyra frá mér fljótlega.. kem örugglega bráðum upp barnalandssóði fyrir prinsinn :)
Ef meðgangan þin var akkúrat 40 vikna löng þá er barnið fætt og kannski að hvíla sig eftir ferðalagið. Eftir að barnið fæðist verður skyndilega mikil breyting á hormónastarfsemi þinni. Á eftir barninu kemur fylgjan sem hefur framleitt mikið af hormónum. Skyndilega dregur úr framleiðslu ákveðinna hormóna en önnur koma í staðinn s.s. prólaktín sem hvetur til mjólkurmyndunar. Kúlan hverfur ekki alveg strax þó að þú hafir fætt barnið en hún minnkar mjög mikið. Það blæðir frá leggöngunum en það er blóð sem kemur frá þeim stað þar sem fylgjan festist við legið. Þú þarft að jafna þig eftir fæðingu barns hvort það fæddist eðlilega eða með keisaraskurði. Það eina sem þú átt að gera núna er að jafna þig og vera með barninu þínu.
Nýfætt barn er yfirleitt vakandi fyrst eftir að það fæðist m.a. vegna áhrifa frá streituhormónum sem það framleiðir í fæðingunni. Það hefur mikla sogþörf og þörf fyrir hlýju og öryggi. Því fyrr sem það kemst á brjóst – því betra!
..............................................................................................................................
Ef barnið þitt er ekki ennþá fætt þá er bara að bíða í rólegheitum!
annars er bara ekkert að frétta...

Þetta er vikan sem allir hafa beðið eftir! Í lok þessarar viku ertu „á tíma“! Það er samt ekki þar með sagt að þessi tími henti barninu þínu enda er þetta bara meðatals tími og í raun mjög ólíklegt að barnið komi akkúrat í heiminn á „settum degi“!
Barnið er kringluleitara og feitara og í sjálfu sér tilbúið að fæðast. Nú er það 200 sinnum þyngra en það var á 12. viku. Strákar eru oft stærri en stelpur. Barnið vegur nú um 3,5 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 35 sm.
ég ætla að reyna að vera dugleg þessa vikuna og láta ykkur vita hvernig allt saman gengur :) hvenær litla krílinu dettur í hug að kíkja í heimin :) mig er farið að hlakka rosalega mikið til, en er samt sem áður svolítið kvíðin fyrir fæðingunni.. en þetta fer vonandi allt vel :) fór í skoðun í gær, og það kom allt bara rosalega fínt út :) á tíma í næstu skoðun 15 september, en ég ætla að vona að ég þurfi ekkert að mæta þangað.. vonandi verð ég bara búin :) en ég skrifa meira seinna..:)
jæja, núna er ég bara farin að bíða og bíða.. og satt er það.. mér finnst þetta líða bara EKKI neitt.. er ekki farin að finna fyrir neinu og held að ég gangi nú allavegana eitthvað framyfir
en ég ætla að vona ekki, langar til að þetta fari bara að verða búið og ég fái krílið mitt í hendurnar..
en annars er bara voðalega lítið að frétta... ætlaði bara að láta vita aðeins af okkur hérna :)
Leghálsinn gæti verið farinn að mýkjast, styttast og þannig að undirbúa sig fyrir að opnast. Slímtappinn gæti einnig farið hvenær sem er en það getur verið merki um að fæðingin verði á næstu dögum en jafnvel fyrr. Þú gætir fundið meira fyrir samdráttum í leginu (kúlan harðnar) en einnig gætir þú fundið fyrirvaraverki. Samdrættir lýsa sér þannig að kúlan verður hörð án þess að konan verði vör við verki. Fyrirvaraverkir eru samdrættir ásamt verkjum sem koma óreglulega og standa oft stutt yfir. Verkirnir eru ekki óbærilegir en óþægilegir. Fyrirvaraverkir hætta oft við hvíld. Það er talið að fyrirvaraverkir geri gagn því þeir undirbúa leghálsinn með því að mýkja hann. Fyrirvaraverkir eru algengari hjá konum sem fætt hafa áður. Byrjandi fæðing lýsir sér með samdráttum ásamt verkjum, oft kallað hríðir eða fæðingarhríðir. Hríðirnar koma reglulega, lagast ekki í hvíld og aukast smám saman, styttra verður á milli þeirra og hver hríð varir lengur. Legvatn getur farið í byrjun fæðingar án þess að hríðir komi strax í kjölfarið en algengara er að legvatn fari í lok útvíkkunartímabils.
Kynfæri barnsins eru óvenju stór en það er vegna áhrifa frá þeim hormónum sem þú framleiðir. Þetta jafnar sig nokkrum dögum eftir fæðingu. Nú hægir aðeins á þyngdaraukningu barnsins og undirbúningur fyrir fæðinguna hefst af fullum krafti. Barnið vegur nú um 3.2 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 34 sm.
annara er eigilega bara ekkert að frétta.. Langar að fara að losna við þessa kúlu og fá litla krílið í hendurnar, það er það eina sem kemst að hjá mér þessa dagana, er orðin frekar mikið þreytt :/ en það fylgir víst... en ég ætla að reyna að láta inn einhverjar bumbumyndir í dag eða morgun :) bless á meðan...
Þú hefur líklega mikla þörf fyrir að vera í hreiðurgerð! Margar konur finna hjá sér þörf fyrir að vera að þrífa allt hátt og lágt. Passaðu þig bara á því að vera ekki að standa upp á stól eða tröppu alveg sama hversu mikið ryk þér finnst vera þarna uppi. Mundu að það er mikilvægt að hvíla þig vel og að létt hreyfing s.s. stuttar gönguferðir eru af hinu góða.
Þegar þessi vika hefst er barnið fullburða þ.e.a.s. fullþroskað. Fósturhárin eru að mestu leyti dottin af en fósturfitan er ennþá til staðar. U.þ.b. 14 grömm af fósturfitu tapast nú á hverjum degi. Í ristli barnsins er heilmikið af fósturhægðum. Barnið vegur nú um 2,9 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 33 sm.
annars er ekki mikið að frétta... er búin að vera roslega dugleg þessa viku að þvo pínulítil föt og brjóta saman og svona :) mig er farið að hlakka rosalega til að losna við þessa blessuðu kúlu og fá litla krílið mitt í fangið... ekki nema tvær vikur þangað til að ég er sett.. en samt er talað um að meðganga sé 38-42 vikur, þannig að þetta gæti nú alveg farið að bresta á...:P það eru nýjar bumbumyndir síðan 19 ágúst inní myndaalbúminu :)