41 vika í dag... ekkert að gerast...
Ef meðgangan þin var akkúrat 40 vikna löng þá er barnið fætt og kannski að hvíla sig eftir ferðalagið. Eftir að barnið fæðist verður skyndilega mikil breyting á hormónastarfsemi þinni. Á eftir barninu kemur fylgjan sem hefur framleitt mikið af hormónum. Skyndilega dregur úr framleiðslu ákveðinna hormóna en önnur koma í staðinn s.s. prólaktín sem hvetur til mjólkurmyndunar. Kúlan hverfur ekki alveg strax þó að þú hafir fætt barnið en hún minnkar mjög mikið. Það blæðir frá leggöngunum en það er blóð sem kemur frá þeim stað þar sem fylgjan festist við legið. Þú þarft að jafna þig eftir fæðingu barns hvort það fæddist eðlilega eða með keisaraskurði. Það eina sem þú átt að gera núna er að jafna þig og vera með barninu þínu.
Nýfætt barn er yfirleitt vakandi fyrst eftir að það fæðist m.a. vegna áhrifa frá streituhormónum sem það framleiðir í fæðingunni. Það hefur mikla sogþörf og þörf fyrir hlýju og öryggi. Því fyrr sem það kemst á brjóst – því betra!
..............................................................................................................................
Ef barnið þitt er ekki ennþá fætt þá er bara að bíða í rólegheitum!
annars er bara ekkert að frétta...