ÉG :)

Ég heiti Esther Sif Sigurðardóttir og er 18 ára ísafjarðarmær =) ég er að fara að flytja í bæinn og ákvað að gera litla bloggsíðu fyrir vini og ættingja meðan að ég og bumbubúinn erum í bænum :)

Auglýsing

Könnun

Ert þú:

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

þann 23. september fæddist lítill prins :)

30. september 2006 klukkan 01:49

eftir langa og mikla bið fæddist litli prins loksins, hann var nú ekki alveg á því að koma í heimin sá stutti..



litli prinsinn alveg ný fæddur :)

21. september:
Var ég lögð inná meðgöngudeild landspítalans, og átti þá að reyna að koma fæðingunni af stað, ég fékk einhvern stíl til að mýkja leghálsin, en ekkert gekk, ég fór bara að sofa og vaknaði síðan þegar að ljósmóðirinn kom klukkan 9 á föstudagsmorguninn og vakti mig.. spurði hvort að einhverjir verkir hefðu komið yfir nóttina.. en gerðist ekki neitt..
Svanhildur átti lítinn strák :) innilega til hamingju með prinsinn Svanhildur og Raggi :) vonast til að sjá ykkur sem fyrst :)

22.september:
ég fékk annan stíl um morguninn og átti bara að vera róleg og bíða eftir að eitthvað gerðist.. þá komst ég að því að sjúkrahúslega er mjög leiðileg og ég ætla að vona að ég þurfi nú ekki að fara að standa mikið í þessu ;) en allavegana ekkert skeði og ljósmóðirinn kom aftur um kvöldið til að athuga hvort að það hefði nú orðið einhver breyting.. en neinei, ekkert að ske, og ég fékk annan stíl.. og átti síðan bara að fara að sofa og vona að nú færi eitthvað að gerast.. en allt kom fyrir ekki og ég sofnaði bara ljúft.

23.september:
En síðan vaknaði ég um hálf 6 um morguninn við einhverja smá verki, og lét ljósmóðirina vita, hún kom og setti á mig monitor og hringdi í mömmu og sagði henni að nú færi þetta allt að bresta á og hún mætti fara að koma niðureftir.. Mamma kom og við vorum bara að horfa á sjónvarpið til að verða hálf 7, þá fylgdi ljósmóðirinn mér inná fæðingadeildina.. ég fór inná fæðingaherbergi og beið eftir að önnur ljósmóðir kæmi og talaði við mig.. um klukkan hálf 9 fóru síðan að koma einhverjir alvöru verkir og litli prins var fæddur klukkan 15:00.. 
Fæðinginn gekk í sjálfu sér vel, alveg þangað til í endan, þá duttu allir verkir niður og litli var bara hættur við að fæðast ;) Þannig að það var kallað á fæðingalækni og hann var tekin með sogklukku..


24. september:

lágum við bara á sængurkvennadeildinni og Inga amma, Arna María, Magga, Jósef, Ninna vinkona mömmu, Hafrún frænka, Dagmar, Alma, Styrmir, Mamma og Rósa Guðbjört komu til okkar í heimsókn, síðan um kvöldið fórum við bara heim :)   síðan að við komum heim er litli búin að vera algjör engill sefur bara og sefur og drekkur þess á milli ;) bara draumabarn :) ég er samt búin að vera voðalega slöpp og meiða mig í saumunum, en ég vona að það fari nú að lagast, fór til læknis í dag, og mest eymslin eiga að vera farin eftir 5-7 daga..

Ég eignaðist líka lítinn bróður..:) Innilega til hamingju með prinsinn ykkar pabbi og Sirrý og vonast til að komast vestur sem fyrst að sjá ykkur ;)

28.september:

Fór með litla kút niður á barnaspítala í fimm daga skoðun, læknunum leyst voða vel á hann og sögðu að hann væri stór og hraustur strákur :)


Síðan að við komum heim erum við búin að fá mikið af heimsóknum :) litli sefur þær nú yfirleitt bara af sér og er ekkert mikið að skipta sér af þessu, hann er búin að fá helling af fötum í fæðingagjöf og síðan kerrupoka líka :)

Takk æðislega allir sem eru búnir að vera að senda og koma með til okkar pakka Koss


Síðan er bara næst á dagskrá að finna nafn og ákveða hvenær ég ætli að skíra :)


Þarna er verið að klæða hann í heimferðagallan á fæðingadeildinni :)

Komin heim í vögguna mína og búin að fá snuddu ;)

Fleiri myndir af prinsinum eru inná síðunni hennar mömmu, slóðin þangað er:
http://www.simnet.is/hronnha/h.html

En látum þetta duga í bili, læt heyra frá mér fljótlega.. kem örugglega bráðum upp barnalandssóði fyrir prinsinn :)

Esther Sif Siguðdardóttir
hæ elzku esther mín innilega til hamingju með litla gullmolann hann er algjört æði... hlakka til að fá að sjá hann.. en vona að allt gangi vel og að ykkur líði vel...! :)
kær kv. Remy og Gabríel Óðinn
30. september 2006 klukkan 02:27
æjj... hann er svo sætur... algjör gullmoli... en gangi ´þér vel með hann og hlakka til að fá að vita hvað hann á að heita...

Kv. Karen
30. september 2006 klukkan 22:06
Innilega til hamingju með strumpinn :)
01. október 2006 klukkan 17:25
hæ dúllurnar mína !!:** ég er nú farin að sakna ykkar smá !! :) jahh, soldið mikið.. er að spá í að kíkja á ykkur á morgun :** Sakna þín endalaust mikið esther mín, skammast mín eiginlega fyrir það að vera ekkert búin að koma í heimsókn og það er svona stutt á milli okkar núna.. en núna fara heimsóknirnar til ykkar að líða hjá og verða minni og þá ætla ég að fara að koma og dást meira af litla prinsinum !!:* Hlakka til að sjá ykkur elskurnar mínar !!:) love you !!! -Magga
02. október 2006 klukkan 03:31
Ég sakna þín og litla kúts alveg óendanlega mikið !! Get ekki beðið eftir að koma suður til ykkar ljúflingar ....;* !! kysstu og knúsaði litla kút alveg rosalega mikið frá mér og skelltu einum á kinnina þína líka ;)! Kveðjur að vestan
Arna María sem saknarykkarmæðginaótrúlegamikið!!´

e.s. Endilega skelltu upp barnalandssíðu ;)! ég fæ bara ekki nóg af myndunum hjá mömmu þinni, segðu henni að halda því áfram þangað til þið komið upp síðu fyrir litla prins:)
02. október 2006 klukkan 05:53
hæhæh en og aftur til hamingju en hvað var hann stór og þungur og svona ;) bara forvitni :)
02. október 2006 klukkan 16:58

Skrifa athugasemd