ÉG :)

Ég heiti Esther Sif Sigurðardóttir og er 18 ára ísafjarðarmær =) ég er að fara að flytja í bæinn og ákvað að gera litla bloggsíðu fyrir vini og ættingja meðan að ég og bumbubúinn erum í bænum :)

Auglýsing

Könnun

Ert þú:

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

30. vikur í dag :)

30. júní 2006 klukkan 19:05
já, í dag er ég komin 30 vikur og samkvæmt ljósmóðir.is:

Brjóstin á þér eru enn að stækka.  Þú gætir byrjað að finna fyrirvaraverki þó að flestar konur finni ekki fyrir þeim fyrr en á síðustu vikunum.  Raunverulegir hríðverkir standa yfir í u.þ.b. eina mínútu og koma á fimm mínúntna fresti eða minna og standa yfir í a.m.k. klukkustund.  Fyrirvaraverkir standa styttra yfir eru ekki eins sárir og koma óreglulega.


Á næstu vikum mun barnið bæta á sig fitu í meira mæli en áður.  Húðin er ennþá svo krumpuð svo það er nóg pláss fyrir meiri fitu undir húðinni.  Fósturhárin fara nú að minnka og augun hafa opnast alveg.  Hiksti barnsins verður meira áberandi.  Barnið vegur nú um 1,3 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um
27 sm.


en annars er bara voðalega lítið að frétta... jú í gær eignaðist ég lítinn frænda :) innilega til hamingju með strákinn Ellen :*

en já, frí í dag í vinnunni og síðan er ég að vinna alla helgina, en það er ágætt.. ekki eins og ég hafi eitthvað mikið annað að gera.. hehe.. en já, blogga meira seinna...

Esther Sif Siguðdardóttir
1 athugasemd

hvað? er bara ein manneskja sem skoðar bloggið mitt :(

25. júní 2006 klukkan 02:07
jamm og já, ég held að eina manneskjan sem skoðar bloggið mitt sé hún Magga mín... en til hvers þá að vera að blogga, bara fyrir hana? við tölum hvort sem er saman í síma á hverjum degi...

en annars er dagurinn í dag búin að vera erfiður... ég er búin að vera svo þreytt enda svaf ég bara í einhverja 3 tíma í nótt..:S ég og Magga fórum niður í bæ, og og skemmtum okkur alveg konunglega að rúnta á bílnum hans Dóra :D vorum bara flottastar í bænum :D síðan kíktum við aðeins á prikið, og síðan var bara rúntað meira og meira :) vorum komnar heim um klukkan 7 í morgun, og þá vorum við sko EKKERT þreyttar og sátum bara frammi í stofu heima og vorum að spjalla, síðan fórum við að sofa um klukkan hálf 10 í morgun ;) og vöknuðum klukkan hálf 1, því að magga var að fara í giftingu klukkan 4.. og átti eftir að fara og kaupa sokkabuxur og eitthvað :)

ég er að passa litla frænda hennar núna og bara eitthvað að hanga, búið að vera alveg ágætt, er reyndar að leka niður úr þreytu, en það er víst búið að banna mér að fara að sofa snemma í kvöld, á að vera að keyra möggu og mömmu hennar og eitthvað fleira fólk ;) en það er alveg ágætt.. sef bara allan daginn á morgun og hinn :D og síðan framá fimm á þriðjudaginn, því að þá fer ég að vinna, síðan er júni að verða búin :O mér finnst mánuðirinn bara ný byrjaður :D en þetta er fljótt að líða...

ég er komin 29 vikur á leið :D og samkvæmt ljósmóðir.is þá er:
 

Nú getur verið erfitt að finna þægilega stellingu til að sofa í.  Yfirleitt er ekki mælt með því að barnshafandi konur liggi á bakinu vegna þess að þyngdin frá barninu í leginu getur þrýst á stóru bláæðina sem liggur meðfram hryggnum.  Þetta getur valdið vanlíðan og þá jafnframt lélegra blóðflæði um fylgjuna.  Ef þig langar að liggja á bakinu getur þú sett kodda undir hægri mjöðmina því þannig léttir á þrýstingnum.  Notaðu kodda til stuðnings til að koma þér vel fyrir svo þú getir hvílst. 

Barnið hefur nú bætt á sig og er að verða bústnara.  Öndunaræfingarnar eru ennþá reglulegri og stöðugri með minni hvíldum inn á milli.  Barnið vegur nú um 1.15 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 26 sm.

en ég hef bara ekkert meira að segja, þannig að ég kveð bara í bili :D endilega kommentið hjá mér :D

Esther Sif Siguðdardóttir
7 athugasemdir

Magga mín er að koma suður á morgun :D

21. júní 2006 klukkan 16:30
já hún Magga er að koma suður á morgun :) og mig hlakkar ekkert smá mikið til að fá hana :D það verður æði að knúsa hana, enda finnst mér að hún eigi að koma MIKLU oftar í bæinn í heimsókn til mín ;)
en annars er voðalega lítið að frétta.. bara vinna og vinna, ég gerði ekkert 17. júni, vegna þess að ég var að vinna, en það er samt alveg þokkalegt af penignum sem að ég fæ fyrir það :) enda var það stórhátiðarkaup, eða eitthvað svoleiðis :) gaman gaman... en ég hef voðalega lítið að segja, er að fara að vinna eftir smá en ákvað að henda einu bloggi hérna inn fyrst, þar sem að ég er ekki alveg sú duglegasta að blogga þessa dagana :P verð að bæta eitthvað út því :D
Esther Sif Siguðdardóttir
1 athugasemd

eitt smá blogg :D

13. júní 2006 klukkan 00:43
SaklausJá, kannski er komin tími á eitthvað smá blogg Brosandi ég skellti mér bara á ísafjörð um helgina Ullandi það var ekkert smá gott að hitta möggu mína og Hörpu.. tókum okkar venjulegu gelgjurúnt og skemmtum okkur alveg konunglega.. síðan á laugardaginn var ég að keyra fyrir Óla Helga, frænda hennar Sólrúnar.. glænýjan subaru legacy.. einmitt draumabílinn minn... og ég er ennþá ástfangnari núna.. Fýldur mig langar í svoleiðis bíl  vill einhver gefa mér svoleiðis? SaklausSaklaus       En annars gerði ég voðalega lítið.. bara rúntað og rúntað meira og síðan rúntað aðeins meira.. hehe, enda ekki mikið annað að ske... Síðan í morgun áður en ég lagði af stað vestur fór ég í heimsókn til Nínu Dísar og Magga.. og prinsinn þeirra er bara æðislegur.. algjör töffari..Hlæjandi innilega til hamingju með hann elskurnar Hlæjandi þið verðið æðislegir foreldrar Hlæjandi en ég veit ekki hvað skal meira segja.. þannig að ég kveð bara í bili Hlæjandi bæbæ
Esther Sif Siguðdardóttir
5 athugasemdir

ætli það sé ekki komin tími á annað blogg :P

02. júní 2006 klukkan 00:35
Blogg? Hvað er nú það.. hehe, ég er ekki búin að vera dugleg að blogga, enda hef ég svosum ekkert mikið að blogga um.. við höfum það bara aldeilis fínt hérna í bænum.. alltaf að vinna og svona skemmtilegheit... Eina sem að ég þoli ekki við þessa blessuðu vinnu eru kúnnarnir sem koma þarna bara til að spjalla og segja manni hitt og þetta, þú veist halló, eigiði ekki vini til að deila þessu með, ég hef ekki mikinn áhuga á að hlusta á að klósettpappírinn hafi klárast seinast þegar að þú varst á klósettinu ;) haha, já það kom sko kona í búðina og tilkinnti mér það.. ansi skrautlegt fólkið sem að kemur þarna stundum...  Síðan er sjónvarpið mitt og rúmið komið, pabbi loksins búin að senda það, og þar með get ég sagt að ég sé flutt... Sigga kom í heimsókn hingað í gær og við fórum saman í ólafía og ólíver.. og hún gaf mér barnabílstól.. ég ætlaði að setja inn mynd af honum, en það bara virkar ekki Óákveðinn

 Annars er bara voðalega lítið að frétta, ekkert mikið sem að gerist hérna.. Elísabet systir mín er að koma í heimsókn frá Húsavík yfir helgina, það verður alveg ágætt að fá hana, nema að ég verð að vinna bæði laugardaginn og sunnudaginn til klukkan 5... en það verður bara að hafa það.. síðan er Rósin mín að fara til Akureyrar til pabba síns á laugardaginn.. þannig að eftir helgi verðum við mamma bara tvær eftir í kotinu, og verður það örugglega bara ljúft :D en jæja, ætli ég láti þetta ekki duga í dag, reyni að láta ekki líða svona langt á milli bloggs næst... bæ í bili...
Esther Sif Siguðdardóttir
6 athugasemdir

fyrsti dagurinn í vinnunni :)

23. maí 2006 klukkan 01:16

jæja, þá er fyrsti dagurinn vinnunni búin, og var bara alveg ágætt að komast út og fara að gera eitthvað Brosandi leist bara vel á fólkið sem að ég var að vinna með og skemmti mér alveg ágætlega, fyrir utan það hvað það er ógeðslega kalt inní kæli og hvað þá að vera þar inni og fylla á Hissa ég var alveg að frjósa úr kuldaÓákveðinn en þetta var allt í góðu samt.. leist bara vel á stelpuna sem að eg var að vinna með, hún heitir Elísabet og við verðum að vinna saman á öllum helgum í sumar.. bara flott skoUllandi á samt eftir að kinnast fleirum þarna.. á örugglega eftir að líka bara alveg ágætlega  Saklaus vonandi.... en ég hef nú eitthvað lítið að segja, gerist ekkert hérna hjá mér.. er alltaf bara að passa og svoleiðis skemmtilegheit Ullandien ég kveð í bili... bæbæ 
Esther Sif Siguðdardóttir
2 athugasemdir

Leti helgi...

21. maí 2006 klukkan 17:00

já ég er sko búin að liggja í leti alla helgina..Hissa  ekki búin að koma miklu í verk, en það er svosem allt í lagi, ekki eins og ég hafi getað gert mikið.. er eigilega búin að fá herbergið sem að Sunna og Hákon voru í, þau er flutt vestur aftur, og þá get ég nú farið að raða draslinu mínu þangað inn.. er að byrja að vinna á morgun, og ég held að það verði alveg ágætt bara að hafa loksins eitthvað að gera Brosandi það er leiðilegt til lengdar að vera bara heima og láta sér leiðast.. eins og ég segji, þá er ekki mikið að frétta.. langaði bara að láta vita að ég sé á lífi..

ég sakna ykkar stelpur mínar heima Koss þið verðið eigilega að koma suður og heimsækja mig.. ég er með nægt gistipláss fyrir ykkur  en eg blogga meira seinna.. bless i bili..
Esther Sif Siguðdardóttir
2 athugasemdir

18. maí 2006 klukkan 23:49
Hvaða manneskja veit mest um þig :  Magga mín, og síðan Harpa...
Hverju er þér stritt mest útaf : bumbunni minni Ullandi
Hvaða vini þina hefur þú þekkt lengst : Möggu, Dominiku, og bara marga...

Hvaða vini þina hefur þú þekkt styðst : Lindu og Hörpu...

Hvaða vinur þinn er fyndnastur : Magga mín Koss
Hvaða vinur þinn er feimnastur : ég bara veit ekki...
Hvaða vinur þinn veit mest um þín vandamál: Magga og Harpa..

Klárasti vinur þinn : allir vinir mínir eru svo klárir að ég geri ekki upp á milli þeirra..Glottandi
Hvaða vin saknar þú mest: Möggu minna og Hörpu..
Hvern talar þú mest við á netinu : möggu...

Síðasta manneskja sem þú talaðir við á netinu : Harpa sætasti

Hvern talaðiru seinast við í símann : Hörpu bara rétt áðan
Hverjum treystiru best : Hörpu og möggu.. Hvern rífstu mest við :  Guffa örugglega Skömmustulegur

Hver er ljúfasti vinur þinn :  allir...
Besti Söngvarinn : Harpa og Magga audda!!!!

Hvaða vini þínum finnst þú alltaf vera skrítin : öllum...

Hver er háværasti vinur þinn : ?
Heima hja hvaða vini varstu seinast: Möggu

Með hvaða vini þínum ertu örugg með : Flestum

Þekkja vinir þínir þig : já það held ég allavegana...

Síðasti vinur sem þú fórst í búðir með : man það ekki...

Hvaða vinur þinn olli þér vonbrigðum : segji ekki.. hef mínar ástæður fyrir því

Manneskja sem saknar þín :  Harpa og magga
Seinasta manneskja sem þú hugsaðir um : Magga, Harpa og Guffi

Seinasta manneskja sem þú týndir: týni ekki fólki...
Seinasta manneskja sem þú elskaðir: ?
Hverjir eru þínir albestu vinir: Magga, Harpa, Guffi, og örugglega fleiri..
Hver er flippaðasti vinur þinn? Ég og Magga saman
Hvaða vinur þinn huggaði þig síðast þegar þú grést?   Magga...


Seinasta manneskja sem bjargaði deginum fyrir þér : Magga og Harpa eru alltaf að bjarga honum Koss

Esther Sif Siguðdardóttir
3 athugasemdir

jæja, þá er maður komin suður!!

16. maí 2006 klukkan 01:20
ég er komin heil á höldnu suður Hlæjandi núna tekur bara leti við og svefn, þangað til að ég byrja að vinna í næstu viku.. það verður fínt að vinna, og hafa þá eitthvað að gera.. er eigilega búin að gera voða lítið síðan ég kom í bæin.. það var afmæli hérna á laugardaginn fyrir hana rósu og var dagurinn bara alveg fínasti dagur.. síðan á sunnudaginn var bara legið í leti og sofið og horft á sjónvarpið og eitthvað.. vaknaði reyndar klukkan átta í morgun, en fór bara að sofa aftur og mamma vakti mig um klukkan 11...
Í dag er búin að vera alveg ágætur þvælingur, ég og Sunneva fórum í Smáralindina og vorum að leita á fötum á hana.. hún fann sér eina skyrtu, síðan urðum við að þjóta aftur uppá höfða að ná í bílinn hennar, hún var orðin aðeins of sein þessi elska Glottandi annars er ég bara heima að passa Rósu, því að mamma er að vinna.. og verður að vinna eitthvað framá nótt, það verður ekki mikið gert á kvöldin þangað til að Rósa fer norður til pabba síns, mamma verður alltaf að vinna og ég að passa þessa litlu frekjudós...Hissa já hún litla systir mín er sko FREK... en það er nú eitthvað lítið við því að gera.. erfitt að kenna gömlum hundi að sitja... en jæja, þetta er orðið gott í dag, ég skrifa meira seinna þegar að mér dettur eitthvað skemmtilegt í hug Hlæjandi
Esther Sif Siguðdardóttir
1 athugasemd

ég er bara að fara..:S

12. maí 2006 klukkan 03:52
jamm þetta er allt saman að styttast Ullandi ég flyt suður ekki á morgun heldur hinn, og ég er ekkert nema stressuð og kvíðin.. veit alveg að maður hefur gott að því að skipta um umhverfi svona stöku sinnum, en samt.. ég er að fara að flytja í burtu frá öllum vinum mínum.. og eg held að það verði alveg virkilega erfitt..Gráta á eftir að sakna ykkar svo mikið Koss *taki þeir til sín sem eiga* Hlæjandi ég á líka eftir að gera svo mikið áður en ég fer.. veit ekki alveg hvort að ég komist yfir það allt saman Hissa vonum það bara... er að fara að vinna seinasta daginn í bakaríinu á morgun.. frá 13-16... og síðan ætla ég heim að pakka niður og eitthvað, reyna að hitta sem flesta til að kveðja... úff...Óákveðinn en þetta reddast allt, brottför er klukkan 10 á laugardagsmorgunin.. verð að vera komin snemma suður, því að litla systir mín er að fara að halda uppá afmælið sitt Brosandi hún er átta ára skvísan Koss en ég veit barasta ekki hvað ég á að skrifa hérna meira.. lofa að vera dugleg að blogga þegar að ég er komin suður.. veit ekki hvort að það verði eitthvað blogg þangað til Ullandi bless í bili.. ég á eftir að sakna ykkar allra...
Esther Sif Siguðdardóttir
4 athugasemdir